Wednesday, May 31, 2006
Ævintýri á gönguför
Fór síðdegis í gær með gönguklúbbi í fyrstu Esjugönguna. Rigningarsuddi var og þegar upp í fjallshlíðina kom var hvasst. Gengið var upp að Steini og en ekki þótti ráðleggt að fara ofar. Á bakaleiðinni var rigningin í andlitið og virkaði meir eins og haglél.
Heimkominn og hugsandi um afrek dagsins varð til þessi limra:
Heimkominn og hugsandi um afrek dagsins varð til þessi limra:
Í gærdag ég örlögum ögraði
upp fjallið klúbburinn flögraði
og ég sem óður
á eftir þeim móður
næstum alla leið á Esjuna skjögraðiFékk svo sendingu og hvatningu frá kollega mínum LG á þessa leið
Þótt slagviðrið kýlist í kroppinn
og kuldinn mjög geri þig loppinn
ei stöðvar þig þreytan
og því síður bleytan
af þolgæði kemstu á toppinn.
Friday, May 26, 2006
Endurfundir
Titill þessarar bloggsíðu er sóttur í ljóð Hannesar Péturssonar.
Ég hef rifjað upp í kvöld
raddirnar sem ég þekkti
rödd lækjarins í grasinu
rödd hafsins
raddir vindsins og fuglanna
og raddir okkar sjálfra.
Trúði varla eyrum mínum.
Öllu hafði ég gleymt.
Trúði varla augum mínum:
sjá enn skinu stjörnurnar
enn kom ljós þeirra hér við
á leið sinni um geiminn.
Líka það
var mér liðið úr minni
Höf: Hannes Pétursson, 1965