Thursday, June 01, 2006

 

Eftirköst Esjugöngunnar

Ó, guð hversu lifandis lengi
leggurðu á mig þessa þvengi
ég er aumur í lærum
og undir nærum
er með þessa stingandi strengi

Comments:
Ég las ljóðið á ljóð.is og líkaði vel... en varst þú ekki líka með ljóð dagsins 1. maí? Kannski það sé eitthvað kerfi í þessu.
Snúður
 
allt eitt samsæri,

en þess ljóð eru eftir vin vindsins ekki hann sjálfan.
 
Þetta er snúið!
Snúður
 
sko, það er með þetta mánaðarlega....
en vindurinn berst víða
 
The lunar effect?

http://en.wikipedia.org/wiki/Lunar_effect

Snúður
 
forsjálir klettana klífa
færir útlimunum hlífa
þurfa því ekki
að hlaupa í kekki
ogá netinu kjaftinn að rífa

Snúður
 
Til að áherslurnar fari nú ekki á milli mála ætla ég aðeins að lagfæra þetta:

Forsjálir Klettana Klífa
Færir út-Limunum Hlífa
Þurfa því Ekki
að Hlaupa í Kekki
ogá Netinu Kjaftinn að Rífa

Kannski ég þrói þetta ennþá lengra næst og bæti jafnvel við punktum og kommum

Snúður aftur
 
þá færðu eitthvað fyrir þinn snúð

takk dularfulli snúður :)
 
Post a Comment



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?